Þemadagar
Við hófum nýja árið af krafti með þemadögum dagana 12. - 14. janúar. Nemendum var skipt í hópa þvert á árganga og fóru saman á mismunandi stöðvar. Þemað var Astrid Lindgren og börnin kynnust ævintýraheimi hennar, bókunum, persónum og sögusviði. Þau fengu meðal annars að tálga eins og Emil í Kattholti, gera fléttur og vinabönd í anda Línu Langsokk og leika úti eins og Ronja ræningjadóttir.
Þemadagarnir tókust afskaplega vel, skipulagið var gott og nemendur jákvæðir og glaðir. Sköpunargleðin réði ríkjum eins og sjá má á veggjum skólans.