Skólasetning Melaskóla 2026
Melaskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst.
Skólasetningin fer fram í Skálanum í Gamla skóla og hefst hún á ávarpi skólastjóra. Að því loknu er farið í heimastofur. Gera má ráð fyrir að skólasetning og samvera í heimastofu taki u.þ.b. klukkustund.
Kl. 9:00 - 2., 3. og 4. bekkur
Kl.10:00 - 5., 6. og 7. bekkur
Kl. 13:00 - 1. bekkur
Foreldrar fylgja börnum sínum á skólasetningu og taka þátt í samveru í heimastofu.
Athugið að frístundaheimilin eru ekki opin þennan dag.
Nýir nemendur í 2. - 7. bekk eru hjartanlega velkomnir í heimsókn í skólann fimmtudaginn 20. ágúst kl. 15:00. Við tökum á móti þeim í Skálanum í Gamla skóla.