Vonskuveður

ovedur

 

Í dag, fimmtudaginn 26. mars, hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá klukkan 7-13. FÓLK ER HVATT TIL AÐ HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU. 

Veruleg röskun verður á skólastarfi. Í grunn- og leikskólum verður aðeins lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börn sín í grunnskóla og leikskóla eru beðin um að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti

Hefðbundið leikskóla- og frístundastarf hefst eftir að viðvörun fellur úr gildi. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjölmiðlum. 

Með kveðju, 
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar