100 daga hátíð

100_dagar_2026

Í dag fögnuðum við því að nemendur 1. bekkjar eru búnir að vera 100 daga í Melaskóla! Nemendur 1. bekkjar gengu fylktu liði um skólann og eldri nemendur fögnuðu þeim af miklum krafti. Stoltið skein úr augum nemenda og ekki fór á milli mála að þau voru ánægð með þennan stóra áfanga í þeirra lífi.